Ráðgjöf um gervigreind og stafræna umbreytingu
Vinnum saman að því að móta skýra stefnu og velja réttu tækifærin.
Öll fyrirtæki hafa aðgang að sömu tækninni. Forskotið liggur í því sem fyrirtækið byggir í kringum hana.
Verðmætin verða til þegar vinnubrögð, ferlar og ákvarðanir breytast með tækninni og það er verkefni stjórnenda.
Tæknin heldur áfram að þróast og forskotið fá þau fyrirtæki sem læra og aðlagast jafnóðum.
Þjónustan.
Ráðgjöfin nýtist sérstaklega flóknum, þekkingardrifnum og eftirlitsskyldum fyrirtækjum, þar sem kröfur um gæði gagna, stjórnarhætti, skjölun og áhættustýringu eru hvað mestar og samvinna þvert á svið ræður miklu.
Hægt er að byrja þar sem hentar.
Fyrirlestrar um gervigreind.
Erindi um gervigreind: hvað hún þýðir fyrir fyrirtæki, hvar tækifærin liggja og hverju þarf að breyta til að ná árangri.
Um mig.
Ég vinn með stjórnendum að stefnu- og skipulagsvinnunni sem fylgir innleiðingu gervigreindar.
Bakgrunnurinn er í stærðfræðilegri líkanagerð og síðar í að leiða stefnumótandi verkefni og skipulagsbreytingar hjá Alvotech.
Leiddi innleiðingu á hugbúnaði fyrir ferlalíkön hjá vísindateymum, undirbúning fyrir framleiðsluúttekt FDA og stefnumótandi verkefni í umboði forstjóra.
Leiddi stofnun Frumunnar líftækniseturs í samstarfi við Alvotech og Háskóla Íslands. Setrið sameinar rannsóknastofur, nýsköpunarhraðal og fjárfestingarsjóð.
Þróaði reiknirit fyrir boltarakningu í Python og C++ sem notuð eru í atvinnuíþróttum.
Hafðu samband.
Ef gervigreind er á dagskrá hjá ykkur er einfaldast að byrja á stuttu samtali.