AI Tækifæri
Greining og forgangsröðun á tækifærum til að nýta gervigreind, og hvernig á að koma þeim sterkustu áfram.
AI Tækifæri svarar því hvar gervigreind getur skapað verðmæti í rekstrinum og hvaða tækifæri eru þess virði að sækja.
Tækifærin eru kortlögð og metin. Vinnan skilar vel skilgreindum notkunartilvikum og skýrri forgangsröðun.
Svona eru tækifærin þróuð
Byrjað er á að kanna hvar gervigreind gæti bætt vinnu, stutt betri ákvarðanir, skapað nýja getu eða orðið grunnur að nýjum vörum og þjónustu.
Notkunartilvikin eru metin og þeim forgangsraðað út frá markmiðum fyrirtækisins: horft er til virðis, fýsileika, stöðu gagna og áhættu.
Afraksturinn:
Hvar er best að byrja?
AI Tækifæri getur byrjað um leið og markmiðin og umfangið eru skýr. Ef stjórnendur þurfa fyrst að ákveða hvað gervigreind á að þýða fyrir fyrirtækið er betra að byrja á AI Stefnu.
Smíði og rekstur lausnanna er áfram í höndum tækniteyma fyrirtækisins eða samstarfsaðila.