AI Stefna

Stjórnendateymið mótar sameiginlega afstöðu til þess hvað gervigreind þýðir fyrir fyrirtækið, hvar hún skiptir mestu máli og hverju þarf að breyta.

Stefna um gervigreind er skýr afstaða stjórnenda: hvernig fyrirtækið ætlar að nýta gervigreind, hvar hún getur skapað raunverulegt virði, hvaða metnað fyrirtækið setur sér og hverju það er tilbúið að breyta.

Útkoman er sameiginleg stefna sem hægt er að taka ákvarðanir eftir og skýr forgangsröðun næstu skrefa.

Lykilákvarðanir í stefnumótuninni

Í stefnumótuninni þarf, eftir stöðu og metnaði fyrirtækisins, að taka skýra afstöðu til nokkurra lykilþátta:

01
Samkeppnisstaða

Hvar gervigreind er orðin nauðsynleg til að standast samkeppni, hvar hún getur skapað raunverulegt forskot og hvar hún gæti ógnað núverandi viðskiptalíkani.

02
Skipulag, ábyrgð og stýring

Hvernig gervigreindarstarfið er skipulagt, hvar ábyrgð og ákvörðunarvald liggja og hvaða leikreglur, eftirlit og áhættuvilja þarf til að auka notkun á ábyrgan hátt.

03
Störf, verkferlar og hæfni

Hvernig hlutverk, verkferlar og ákvarðanataka breytast, hvaða færni fólk þarf og hvernig gervigreind verður hluti af daglegri vinnu.

04
Gögn og forsendur

Hvaða gögn þarf til að styðja við stefnuna og hvernig eignarhaldi, aðgengi, gæðum og stýringu þeirra er háttað.

05
Forgangsröðun og fjárfesting

Hvernig verkefnum er forgangsraðað og fjárfestingum í gervigreind stýrt sem einni meðvitaðri heild, fremur en safni ótengdra verkefna.

06
Árangur og verðmætasköpun

Hvernig árangur er skilgreindur og mældur, og hvaða gögn þarf til að sýna fram á verðmætasköpun.

Ekki þarf að útfæra alla þessa þætti í smáatriðum, en taka þarf skýra afstöðu til þess hvað skiptir máli, hverju þarf að breyta og hvað á að gera fyrst.

Hvernig vinnan fer fram

Vinnan er mótuð út frá þeim ákvörðunum sem stjórnendateymið þarf að taka. Hún getur verið hnitmiðuð vinnustofa stjórnenda eða röð vinnufunda með greiningu og undirbúningi á milli.

Umfang og afrakstur eru skilgreind í upphafi. Þegar sameiginleg mynd af stöðunni vantar getur stöðumat verið gagnlegt fyrsta skref. Annars getur stefnuvinnan hafist beint.

Afraksturinn:

01Stefna um hvar gervigreind skiptir mestu máli og hvaða metnað fyrirtækið setur sér
02Forsendur fyrir fjárfestingu: hvaðan verðmætin eiga að koma og hvað á að fjármagna fyrst
03Aðgerðaáætlun: hvað þarf að gera, í hvaða röð og hver ber ábyrgð
04Skýrar leikreglur sem halda daglegum ákvörðunum í takt við stefnuna
Anna Gardarsdottir

Byrjum á samtali.

Hafa samband